Brandari dagsins : elsku mamma...

Mamman gekk framhjá herbergi dóttur sinar og varð nokkuð undrandi að sjá að það var búið að búa um rúmið og taka til í öllu herberginu. Hún sá að það var umslag á miðju rúminu og á því stóð "TIL MÖMMU".

Mjög áhyggjufull opnaði hún umslagið og las skjálfhent bréfið sem í því var.

W00t

    Elsku mamma,

það hryggir mig nokkuð að þurfa að segja þér með þessu bréfi að ég er hlaupin að heiman. Ég geri þetta svona til að koma í veg  fyrir að pabbi reiðist mér.   Ég hef að undanförnu fundið sterkar tilfinningar til Ahmeds og hann er yndislegur þrátt fyrir öll götin, húðflúrin, skeggið og mótorhjólagallana sína. En það er ekki bara það mamma mín að ég ber svona sterkar tilfinningar til hans því að ég er ólétt og Ahmed segir mér að hann sé ánægður með það. Hann er þegar búinn að kaupa hjólhýsi fyrir okkur að búa í og hann er búinn að safna helling af eldivið til að halda á okkur hita í allan vetur.

Hann er búinn að segja mér að hann langi til að eignast með mér fullt af börnum með mér og ég er innilega sammála honum með það. Ahmed hefur kennt mér að mariuana gerir engum illt í raun og veru, og ætlar hann að rækta nóg af því fyrir okkur þannig að við munum eiga nóg af því  afgangs til að skipta því á kókaíni og e-töflum handa okkur báðum. En ég vona líka að vísindamenn finni fljótlega lækningu á AIDS svo að Ahmed mínum batni, hann á það svo skilið!!!!!!  En ég bið þig að hafa ekki áhyggjur mamma mín því að ég er nú orðin fimmtán ára og kann alveg að sjá um mig sjálfa. Þar að auki er Ahmed orðinn þrítugur þannig að hann veit alveg hvað hann er að gera.

Einhvern daginn ætla ég svo að koma í heimsókn svo að þú getir hitt öll barnabörnin þín.

Þín dóttir Guðrún

P.s. Mamma, ekkert að ofansögðu er satt. Ég er í heimsókn hjá Siggu í næsta húsi.  Mig langaði bara að láta þig vita að það er margt verra í heiminum en einkunnarspjald mitt sem er í efstu skrifborðskúffunni. Ég elska þig. Láttu mig vita þegar það er óhætt fyrir mig að koma heim.

LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband