Maður Lifandi

Jæja, mín var rekin af Hrafnistu, ekki svo slæmt, ég ætlaði að segja upp en Hrafnista var á undan. Næturvaktir voru ekki að henta mér neitt! Ég var búin að sækja um á Maður Lifandi áður en mér var sagt upp og ég ætlaði að mæta í atvinnuviðtalið og sjá hvort ég fengi vinnuna og SVO segja upp! En... jæja. Ég byrja í næstu viku, ég verð á þriðju- og fimmtudögum í matstofunni. Þannig að ef þú vilt fá þér að snæða á Maður Lifandi, sem ég mæli alveg svo mikið með, þá hittiru mig, þ.e.a.s. ef þú mætir í Borgartún, og á þeim tíma sem ég er að vinna! Komdu! 

Góðar fréttir! Pabbi fékk sér stöð 2 sem ég mæli ekki með, ég mæli með að þú fáir þér reiðhjól! Nei djók! Stöð 2 er ágæt, Jamie Oliver er einmitt að mæta á skjáinn núna... ehe... ekki fyrir mig, en það sem er frábært við þessar góðu fréttir er að pabbi fékk skemmtipakkann líka hjá stöð 2!!! Sem inniheldur Cartoon Network og VH1!!! og Mtv og Hallmark og MGM OG TCM og ein Disney Channel...

Ég held að ég haldi mig bara við það að vinna tvisvar í viku og falla kannski í skólanum.... NEI! ekki sjens. Ó mæ god. Jamie Oliver nær alveg tökunum á mér! Hann hreifir sig svo sérkennilega þegar hann eldar og þegar hann er að útskýra hitt og þetta og er svo ör og bara spes!... spes! 

Endilega farið á vefsíðu Maður Lifandi. Fullt af fróðleik og skemmtilegum góðum og hollum uppskriftum! (www.madurlifandi.is) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband