You Son Of A Bitch!!!

Sælt verið fólkið, ég veit ég hef verið löt við að blogga. Kannski veit ég ekki hvað ég má segja og hvað ekki. Ýmislegt sem ég lendi í, sem ég sé, sem ég hugsa er lítt bloggvænt. Ekki að ég sé með einhvern sorahugsunarhátt eða gjörðir. Bara óheppin. Sem er á sama tíma heppni. Óútskýranlegt!

 Pabbi seldi hundinn sem hann gaf mér fyrir nokkrum mánuðum og ég var ekki sátt og viti menn, ég fékk hann aftur og ég er meira en glöð! Hann fyllir innra tóm mitt af ást og hlýju. Æj þið vitið hvað ég á við. Í augnablikinu er ég óeðlilega þreytt, af vangefnum ástæðum, og veit ekki hvernig ég get best orðað hluti! Crap, þarna sjáiði! Braski lúllar í kjöltunni minni og ég hlakka til að fara að sofa með hann í fanginu. Hann er eins og besti vinurinn sem ég átti.... en fór! Sem var hjá mér 24/7. Það er draumur!

Já, Andri félagi minn bauð mér á The Simpsons Movie! Í lúxus salnum! Djöfull var hún betri en ég hélt. Hefði samt vel viljað sjá hana á íslensku því þátturinn íslenskaði var svo hlægilega og vel hressandi misheppnaðir. Það fyndna var hversu illa þátturinn var gerður! Þátturinn sjálfur var ekki fyndinn fyrir fimmeyring! Jafnvel ekki fimmhundruð billjarða! En það er ekki eins og fólkið hafi verið að reyna að skemma þáttinn, eða hvað? Enskur húmor er ekkert auðtúlkaður! Eins og einu sinni var brúðkaup í bíómynd og einn af pöbbunum stóð upp og sagði "I'd like to make a toaste" og svo kom textinn... "ég vil gera ristabrauð!" WODDAFOKK!!! Það GERIR enginn ristabrauð í fyrsta lagi! Og annað sem ég persónulega lenti í að verða vitni að; maður nokkur í svaka spennó glæpamynd kemur að fórnarlambinu, dauðu, honum bregður, hann fær sjokk og segir hina víðfrægu setningu "Oh my God!!!" og textinn : "hamingjan sanna!". Það er engin hamingja í þessu samhengi! Var túlkurinn antikristur eða hvað?? Fyrrum vinkona mín sá einu sinni gangstera mynd þar sem allir hip hoppararnir og kúl dúddarnir voru með blótsyrði í öðru hvoru orði. Einn dúddinn sagði "You son of a bitch" og textinn : "pétur páll!". Hvað er málið með það? Túnkurinn hafði örugglega komist að framhjáhaldi mannsins síns! Nei, djók! Hvað veit ég um það!

Jæja nóg í bili, túrilú


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband